<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, nóvember 14, 2007

-Þarf að bursta af tungumálakunnáttu minni-

Jesúss.. eins og einhverjir vita þá er ég að þjálfa allan skalann af útlendingum í sundi þessa dagana og hefur gengið misvel þar sem þau eru mistalandi á íslensku. Hvað varð um gömlu góðu enskuna.... í dag átti ég frekar forvitnilegt samtal.. Yfirþjálfarinn hringir í mig..

hún; Hulda, mannstu eftir þessum hópi þarna sem kom frá Colimbíu um daginn og settist hérna að..


ég; ummmmm.. já (guð nei hvað eru hún að tala um)


hún; æ þú veist þessi sem voru að flýja


ég; já einmitt (what?!? sjett þarf að horfa á fréttirnar)


hún; já það er einmitt en úr þeim hópi að fara að bætast við hópinn þinn.. mætir í dag..


ég; já ok. frábært (what!?!?! er töluð spænska eða hvað ... jesússs)


hún; jájá það gengur fínt.. gangi ykkur vel..


ég; ha já takk.. við reddum þessu (ætli barnið tali eitthvað annað en spænsku?)


Svo kom á daginn að blessað barnið tala tjaa svona 15-40 orði í íslensku og þau eru pottþétt ekki sundtengd.... svo ég tók bara upp enn einn leikþáttinn þarna á bakkanum.. þetta er eiginlega ekki fyndið.. ég svitnaði ábyggilega meira af stressi en blessað barnið sem ekki skildi neitt...

Svo þar höfum við það.. ég þarf að læra, spænsku, pólsku, rússnesku, serbnesku... jólagjöfin í ár kannski bara tungumálanámskeið...

þar til næst lifið heil...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?