<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, október 09, 2006

-Fínt fólk á Akureyri :)-

Það var þetta líka fína party á hverfis um helgina... Þetta var Hið mikla akureyrapary sem haldið var.... það var stappað hús hérna eftir miðnætti og svona líka fannta mikið stuð á liðinu..... Það var nú svoldið búið að vara mig við mannskapnum.. einhverjar sögur fara af þessum þjóðflokki þarna að norðan.. en ég verð nú bara að segja fyrir mitt leiti að þarna var MJÖG fínn hópur á ferð... Enda hef ég nú líka alveg ótrúlega góða reynslu á þessu yndæla fólki... þegar við vorum þarna í sumar krakkarnir fengum við ótrúlega góða þjónustu hvar sem við vorum, það var gert við dekk fyrir okkur á laugardegi og okkur boðið að tjalda í garðinum hjá verkstæðismönnunum :) svo var okkur boðið í fjallgöngu af heimastákum (heimasætur öfugt) þetta var allt saman algjör snilli...... svo ég er sátt við fína helgi :)

-þar til næst lifið heil-

föstudagur, október 06, 2006

-Komin með nýtt heimili fyrir utan hverfis-

Vegamót er nýji uppáhalds staðurinn minn... þó ekki á djamminu heldur á daginn.. ég er orðin forfallin fíkill í að röllta upp á vegó á daginn og fá mér að borða eða kíkja í kaffi.... Aumingjans Hildigunnur er dregin með í þetta nánast daglega..... Mér var sagt að ég fengi leið fljótt en ég er ekki alveg að sjá það gerast... og það eru ekki nema svona 10 skref uppeftir svo þetta er ótrúlega hentugt :)

Fór á konukvöld á miðvikudaginn.... snyrtihillan var eins og eftir kjarnorkusprengju um kvöldið... var að drukna í allskonar prufum.. sem húðin er að njóta góðs af þessa dagana... leið eins og Jennifer Aniston í nýjustu myndinni hennar :) People with money held ég að hún heiti... ekki neitt rosalega góð samt....

Annars er Akureyringaparty á hverfis á morgun.. ætti að vera fanta fjör.. verið að fara gefa nýjan bjór og svona... svo ef þú ert frá Akureyri komdu þá :)

-þar til næst lifið heil-

This page is powered by Blogger. Isn't yours?