<$BlogRSDUrl$>

föstudagur, október 31, 2003

-Komin á naggla-

jæja nú er maður komin á naggladekk og því getur snjórinn farið. Siggi smellti þeim undir fyrir mig í gær þessi elska og nú er trukkurinn fær í allt :)

það er bara komin en einn föstudagurinn :) það er planið að fara að djamma í kvöld.. svona aðeins að taka púlsin á bænum og svo er það Grímupartý hjá Vigni á morgun :)
þetta verður massa helgi :) Fjölskylduræknin kallar reyndar á eitthvað matarboð á morgunn líka en það má alltaf bara rétt láta sjá sig :)

fór í klippingu í gær.. vá hvað maður er orðin fínn:) búin að losa mig við þessar ljósu strípur ... hvað er eiginlega að fólki sem sagði við mig að þetta væri flott... það er merkilegt hvað fólk getur verið óspart á lýsingarorðin þegar maður er ekki sáttur við hárið á sér...

það er hins vegar best að fara að koma sér í djammgírinn.. fara og baða sig í hættulegum geislum sólalampana og ná í sig smá hita í þessum líka skíta kulda!

þar til næst lifið heil....

miðvikudagur, október 29, 2003

-BROTIN TÖNN-

hvað er verið að setja í morgunmatinn hjá okkur þessa dagana???? ég skal segja ykkur það að ég var að borða cheerios í morgunn og braut við það tönn.. það var ekkert smá glatað! nú þarf maður að fara að fara til tannlæknis og allt :( snökkt snökkt....

Það er alveg að koma tími til að skipta um dekk.. mér datt í hug að fara í mat til stóru syss og ég er hreynlega ekki viss um að ég komist heim aftur.. það er bara komin massa snjór úti og allt.. þetta er glatað.. svo er ég viss um að þegar ég skipti um dekk þá fer hann og kemur ekki aftur fyrr en í Janúar.. glatað...

ég fór í litgreiningu í gær.. ég á að vera í rauðu, flöskugrænu og dökkbláu.. :) svo var maður módel það var verið að mála mig og svona... var voða fín.. en það sem hins vegar var frekar glatað var að það sá mig eiginlega enginn.. hvað á maður svo sem að gera á þriðjudagskvöldi annað en að fara heim að sofa.. það var sem sagt bara spegillinn inni á baða og þvottapokinn sem urðu vitni að þessum atburðu.. njótið vel :)

en gott fólk skólinn kallar.. þe. heimavinnan.. þessi óendanlega... :)

en þar til næst lifið heil...

þriðjudagur, október 28, 2003

-Reynum að brosa-

já tölvukerfið í Flensborg er svo að rokka hérna EÐA EKKI!!!!! fyrir hvað er þessi maður eiginlega að fá borgað! ég bara spyr.. er ekki lámark að þessi H#"($S sörver hangi uppi kannski svona tíu mínútur í einu! er það kannski til of mikils mælst.. það er kannski 5 mínútna vinna fyrir þetta mann gerpi á dag!!!!!!

þetta var samt alveg ágætur dagur hingað til sko.. það er kannski af því að ég var ekki búin að opna tölvuna og reyna að ná í heimadæmin mín á tölvupósti skólans.. sem nóta bene virkar aldrei! jújú þá fór bara allt í fokk!
við hins vega reynum að komast yfir þessar hrakningar og halda áfram með daginn...

Ég gerði merkilega uppgötvun í gær.. þetta er snilld.. sko það er alltaf talað um að maður eigi ekki undir neinum kringumstæðum að fara svangur að versla.. það er gott og gilt.. en ég er komin með lausina.. maður einfaldlega tekur einhvern (ekki af sama heimili) með sér að versla og fæ hann til að kaupa allt óþarfadótið sem þig langar í á meðan svengdin er að ganga yfir... og þar af leiðandi losnar þú við að fara heim með allt draslið ;) hehe svona á að gera þetta.. :) og þarf af leiðandi fer maður ekki heim með neitt nema hollan og næringarríkan mat...

nú þarf maður að fara að leita að vinnu eftir áramót... hef ekki hugmynd um hvað mig langar að gera.. þetta þurfa víst að vera vinnur í fleyrtölu... svona svo maður hafi efni á að fara til útlanda nokkru sinnum á næsta ári :)

hvað er málið með veðrið í dag.. það var byrjað á að skafa.. svo kom rigning og svo kom snjór.. hvernig væri að halda sig við svona eins og tvær tegundir af veðri! það er ekki spurning um einhverjar flíspeysur hérna Eleonora mín .. það er bara úr að SKAFA kl. 8 nóttinni :(

en gott fólk.. þar til næst.. lifið heil .......


mánudagur, október 27, 2003

-mánudagur til mæðu-

úff hvað þetta er eitthvað þreyttu dagur.. byrjaði á því að ég vaknaði of seint... fór í efnafræði sem ekki er stuð skal ég segja ykkur á mánudagsmorgni klukkan 8.....

en helgin var GÓÐ............ vá það var ekkert smá gaman.. hitti Ásgeir og Palla og fullt af fleyri strákum og við dönsuðum frá okkur allt vit.. ég var ekki komin heim fyrr en 7 gott fólk.. þetta var mega gaman.. átti reyndar frekar erfitt með að labba á sunnudaginn ég var frekar þreytt í löppunum.. þetta var geggjað.. við bókstaflega áttum dansgólfið :)

Eleonora hringdi í gærkvöldi.. ótrúlega gaman að heyra í henni... :) það gengur bara allt eins og í sögu hjá henni... hún var bara hress og kát :) voða voða gaman að heyra í þér stelpa :)

það er allt að vitlaust hérna í flensborginni það eru bara allir búnir að ná sér í kæasta og kærustur hérna.. maður er bara orðin hræddur.. þetta stefnir allt í að liðið verði búið að gifta sig og verði komið með gullfisk fyrir jól ... pffffff

en gott fólk stærðfræðin kallar á mig..


þar til næst lifið heil .......

fimmtudagur, október 23, 2003

-nú eru bara fimm vikur eftir-

já gott framhaldsskólafólk.. það eru bara fimm vikur eftir og svo eru það bara þessi guðdómlega skemmtilegu próf sem bíða okkar með ofvænum..... þetta lítur frekar illa út.. þe. ég þarf að fara í 5 próf á 4 dögum.. þetta verður helvíti!

Annars erum við nú í ágætum málum.. er búin að vera frekar dugleg að læra þessa önnina (ó jú stelpur ég kem sífellt á óvart :) ) og er búin að vera þokkalega dugleg að stunda þjóðabókhlöðuna þessa dagana :) og svona ykkur til auka fróðleiks þá er alveg rosalega mikið af sætum strákum sem eru duglegir að læra þannig að nú vitum við hvert stefnan verður tekin ;) Áfram bókhlaðan :)

ég var víst ekki búin að deila með þjóðinni hvernig var á vaxtarræktarkeppninni.. það var MERGJAÐ ég er að segja ykkur það.. Betrunarhúsið kom sá og sigraði alla flokka sem þeir voru með í og stemmingin var hreynt út sagt Geðveik..... ég átti þó nokkur öskur sem fram komu í sjónvarpinu (keppnin var sýnd í beinni) þetta var mergja.. góð skemmtun í alla staði.

en það er best að þjóta.. tókst að plata stóru systur til að elda handa mér fisk ;) best að koma sér að matarboðinu... svona áður en hún tapar sér...

þar til næsti lifið heil.....


föstudagur, október 17, 2003

-Háskóli Reykjavíkur rokkar-

ég held ég sé búin að finna mig! vá hvað þetta er mergjaður og frábær skóli.. háskóli íslands hvað?? segi ég nú bara... það var jú eitthvað af sætum drengjum þarna en það voru nú ekki þeir sem voru að heilla mig neitt skal ég segja ykkur heldur var það skólinn.!!. þetta var alveg afbragðs kynning sem við fengum þegar við mættum á staðinn og svo var litlu börnunum gefið kex og djús að henni lokinni :) hversu sætt er það .... En stúlkan sem var að kynna okkur tölvudeildina sagði að ég væri mjög svo efnilegur umsækjandi þannig að HR hér kem ég! íha.... Hey stelpur (Fríða og Eleonora) ég var að labba upp tröppurnar í þessum merkilega skóla og vitið þið hverjum ég mætti í þessum merkilegu tröppum! !!!!!Steina "landó" oooo jú HEHEHEH væri það fyndið að byrja í skólanum með gamla landafræðikennarann síðan í 9 og 10 bekk sér við hlið! þetta er algjör snilld! sé þetta alveg fyrir mér ljós lifandi = "krakkar mínir ég er bara að undirbúa ykkur undir hákólan þar er sko ekki haldið utan um ykkur eins og hérna" og "þegar ég var í háskóla í ameríku þá voru tímarnir aðrir" hve gamall er hann eiginlega orðin ??? .. hve fyndin var hann... :)

annars var þetta slappur dagur í gær.. var með ælupest :( hausinn alveg fastur ofaný klósettinu í heilan sólahring.. ekki gaman og ekki gott.... pffff.... en er orðin hress núna og mjög svo kát... þetta háskóladæmi er alveg að halda mér uppi:)
Svo er föstudagur og svona.. hvað gæti maður beðið um meira heldur en þetta :)
það stefnir allt í hörku djamm um helgina :) það er hið mikilfenglega Vaxtaræktarmót á laugardaginn.. sem ég var búin að minnast á áður .... svo er það blaster fjör á eftir....

en gott fólk námið kallar.... þar til næst.. lifið heil..

miðvikudagur, október 15, 2003

-Nú er það bara þjóðabókhlaðan-

nú verður maður að fara að taka sig á... það er farið að styttast í prófin og eins gott að fara að vera dugleg að læra.. nú er það bara þjóðabókhlaðan næstu daga.. var í Eðlisfræði í morgun og gekk ekki nógu vel... :( Sunna pæja ætlar að taka mig í gegn í Eðlisfræði um helgina þannig að það er eins gott að vera dugleg :) annars verður maður fyrir barðinu á henni :) hehe

Svo er það vaxtarræktarmótið um næstu helgi.. upp þá verður djammað :) allir flottu kropparnir uppi á sviði.. þetta verður ekki amarlegt skal ég segja ykkur :)

Annars er þetta bara mun skárri dagur í dag heldur en í gær.. það er ferð inn í Háskóla Reykjavíkur á eftir.. nú er maður að fara að skoða framtíðina :) Heyrst hefur að það sé mikið að fallegu fólki innan veggja þess skóla.. skal láta ykkur vita af því á morgun.. :)

en ég ætti að rífa augun frá tölvunni og líma þau á Hamlet sem verið er að sína þessa stundina og ég á að vera að góna á...
þar til næst lifið heil...

þriðjudagur, október 14, 2003

-sjálfstætt fólk-

á að vera að gera ritgerð hérna með fimm stelpum úr sjálfstæðu fólki sem er reyndar ekki að gera sig eins og skildi þar sem við erum ekki alveg að fúnkera sem hópur hérna... erum bara að krota eitthvað á blað hérna allar í sitthvoru horninu... hummm.. veit ekki hvað skal gera.. á maður að taka völdin eða bara halda áfram að vera moldvarpa hérna og segja ekki neitt....?

fékk það hins vegar staðfest að það voru ekki FARTÖLVUEIGENDUR sem áttu sökina á því að harðidiskurinn hrundi hérna um daginn... HA! það var einhver frum fum sorver eða eitthvað svoleiðis sem fór ;) en ekkert sem okkur kom við! ekkert að klína neinu á okkur sem við eigum ekki skilið.....

en annars er þetta búin að vera krapy dagur sem mun mjög líklega halda áfram á þeirri braut þar sem það bíður mín eitt próf og svo heim að læra fyrir annað.

bið ykkur því bara að lifa heil að sinni..

mánudagur, október 13, 2003

-Alveg róleg gott fólk þetta kemur allt-

það hefur eitthvað borið á því síðustu daga og kannski vikur :( að ég hafi ekki verið að standa mig á þessu blessaða bloggi.. setningar á borð við “hefur ekkert að tjá þig um umheimin lengur” og “þú ert lélegasti bloggari ever” hafa verið að líta dagsins ljós þannig að nú kemur að því sem allir hafa beðið eftir.. mínar daglegur hugsanir :)

annars er þetta alveg ótrúlega afsakanlegt gott fólk þar sem kennarastéttin er gjörsamlega að standa sig í vinnuni sinni hvað varðar að láta nemendur þreyta próf hægri vinstri og ef það eru ekki próf þá getið þið alveg bókað það að um einhver verkefni eða skýrslur er að ræða.. ekki það að ég sé neitt að væla, þetta er fínt … (og nú er ég að ljúga but what´s a girl to do)

þeir sem ekki hins vegar eru að standa sig í vinnuni eru þeir sem eiga að vera að sjá um tölvukerfið í Flensborg, það get ég sko sagt ykkur.. haldið þið að harðidiskurinn hafi bara ekki hrunið um daginn og úpsss öll gögn nemenda bara farin.. og ekki láta ykkur detta það í hug að þeir taki neina ábyrgð á hlutunum.. ooo nei þetta er fartölvunemendum að kenna! Jájá þetta er allt okkur að kenna! Það er nú lágmark að þessir froðutappar kaupi alminnilegar varnir til að koma í veg fyrir þetta áður en þeir fara að skjóta á okkur… pffff

er búin að vera að kenna nemendum ensku síðustu tvær vikur.. reyndar bara einu sinni í viku og þetta er svo sem ekki mikil kennsla en ég held bara hreynlega að þetta gæti kannski bara átt aðeins við mig :) hverjum hefði dottið það í hug… ha kannski maður fari bara í kennarann… hu neee en samt alveg glimrandi skemmtilegt samt sem áður..

Eitt samt ferlega merkilegt sem ég var að upplifði um daginn… var í Íslenskutíma sem er ekki frásögu færandi.. en það merkilega gerðist að sími hringdi sem er kannski ekki svo óvenjulegt.. en það sem bar útaf var að það kvein ekki í kennaranum um að SLÖKKVA á símanum.. ooo nei heldur kippti hann bara upp símanum sínum sem semsagt var að hringja og ekki láta ykkur detta til hugar að hann hafi slökkt á honum heldur svaraði hann í hann! Eins og ekkert væri… bíddu er ég eitthvað að misskilja þessar reglur sem verið er að drepa okkur á við að læra… Á ekki að vera slökkt á símum í tímum? Eða á það bara við um nemendur? Mér er spurn?

Vona að fólk geti nú farið að anda á ný.. aldrei að vita nema ég láti líða skemur í næstu færslu…

þar til næst.. lifið heil




This page is powered by Blogger. Isn't yours?