<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, júlí 30, 2007

-Signý-

Er að átta mig meira og meira á því að það gæti verið hættulegt að hafa Signýu í vinnu.. komst að því í útilegunni um helgina að hún hefur verið að vekja töluverða athygli meðal karlmanna í CCP og það sannaði sig þegar líða tók á helgina.. mikið af sögum um hina ótrúlegu fegurð hennar fengu að þjóta um tjöldin og ekki leið á löngu þar til að önnur tjöld fóru að gera sig líkleg til að taka þátt í þessum umræðum.. Ungir menn komu til að finna þessa fögru snót og heyrst hefur að eldri menn hafi þurft að hækka róminn þegar hafa átti upp á stúlkunni ... ég er ekki viss um að ég geti passað hana svona í vinnuni okkar eins og Jón gerði í Þórsmörk.. Signý, spurning um að hafa auka dyravörð á vakt þegar þú ert ;) svona til að passa þig :)

Þetta var hins vegar alveg glimmrandi útilega, þrátt fyrir smá rigningu og smá frost :) CCP kann sko sannarlega að wörka staffið sitt :) takk fyrir mig kids..

þar til næst lifið heil...

sunnudagur, júlí 22, 2007

-Vikan-

Þetta var skemmtilega skrítin helgi... Á fimmtudaginn vann ég í næstum sólahring samfleytt. Það var því mjög forvitnilegt að fylgjast með mér á vaktinni um kvöldið þar sem búið var að innbyrgða aðeins meira magn af kaffi en ráðlagt er.. og var ég því eins og dúrasel kanína á amfetamíni... Gjörsamlega með hressa gaurinn i fyrirrúmi.

Laugardagurinn var sofa.. kringlan.. sofa... og svo vinna... það var gjörsamlega kreisí að gera og því vorum við ekkert að missa okkur í gleðinni þegar vaktin var á enda.. allir fremur þreyttir.. Svo við Signý ákváðum að fara bara á lélegt og fá okkur pullu og kókómjólk.. föttuðum báðar eftir langa stund að við værum bara að standa þarna.. löngu búnar að borða.. nenntum bara ekki að labba út í bíl :) Enduðum svo á ansi of löngu spjalli fyrir utan sem varð að morgunmati í íbúðinni fyrir ofan... sem var rosa fínt.. vínarbrauð og rúnstykki...

Áttum fallegt augnablik með Fjölni tattoo þar sem hann lagaði "félagann" á miðri hraðahindrun fyrir framan okkur... við bersýnilega vöktum ekki mikla athygli þarna á hindruninni... mjög fyndin sjón, en signý var frekar hrædd um að hann hefði heyrt í mér hlæja og myndi koma og lemja okkur.. en svo var sem betur fer ekki...

Nú hins vegar er komin Fimmtudagur.. og Ívar á afmæli í dag :) Til hamingju með daginn dúlluhaus :)

Laugar hafa verið teknar með ákveðnu trommpi þessa vikuna.. búin að vakna alla morgna í vikunni og drullast þangað.. fitumælingin í morgun var svona líka hressandi að ég hugsa nú að maður haldi þessu áfram :) Mér tókst meir að segja að sneika Signýu með á Þriðjudaginn...

Útilega á dagskrá um helgina.. það á að skella sér í Þórsmörk með CCP.. alltaf gaman af útileigum svo þessi ætti ekki að vera neitt annað en fun fun fun...

Fótboltaleikur í vikunni... Valur-Fylkir... er að sjá keppnisskapið sem var á Ísland-Ítalía hér um árið vera að koma aftur.. er að reyna eftir fremsta megni að hafa hemil á mér.. þetta er bara svoooo erfitt...

Fleyra er svo sem ekki að frétta eftir vikuna..

þar til næst lifið heil...

þriðjudagur, júlí 17, 2007

-myndir út útilegunni-

http://www.flickr.com/photos/bjarkar/sets

þar til næst lifið heil...

-Heyrst hefur-

- Að Hulda hafi farið að fram-valur leik í gær
- Að Hulda hafi verið í -séns á sleik? bol á leiknum og að það hafi verið séns á nokkrum!
- Að Gunni haldi að Hulda sé nettur valsari inn við beinið
- Að Signý sé stundum að leggja sig úti á götu
- Að Hulda hafi týnst á leiðinni í CCP í gær
- Að Signý sé ekki viss með munin á deildunum í fótboltanum
- Að Ingi sé ekki góður í að rata upp á Þingvelli
- Að skandalar staffadjammsins séu ekki sannir
- Að enginn hafi endað í Danmörku eftir staffadjammið
- Að Anja þurfi ekki að horfa framaný stráka áður en hún ræðst á þá í sleik
- Að Fúsi hafi skutlað Signýu heim af lélegt og ekki boðið henni í cheerios
- Að Hulda svari sms-um sofandi og beri því ekki ábyrgð á þeim
- Að Signý ætli að sitja FH megin á næsta leik liðanna ;)
- Að Anja hafi verið hrædd við ansi marga á Hróaskeldur
- Að Hulda hafi ekki farið út í 3 daga síðan að mac-inn kom í heiminn
- Að mac-inn verið tekinn af henni ef hún fer ekki að sinna fólkinu í kringum hana

þar til næst lifið heil...

laugardagur, júlí 14, 2007

-Er séns á slek eða-
Þetta var klárlega frasi útileigunnar sem farin var í gær.. Sjitt hvað það var gaman.. Smelltum okkur upp á Þingvöll bara.. Stutt að fara og allir gátu farið heim að læra í dag.. Súper nice..

En sorry með það að ekkert blogg hefur borist hingað inn að undanförnu.. það var jú um handabaksbrot að ræða fyrst og svo tölvuhrun.. frekar slæmt. en nú erum við komin á nýja vél svo þetta ætti allt að koma á ný ;) Er svo sjúklega skotin í nýja mac-anum mínum þessa dagana að það kemst fátt annað að :) svoleiðis á það líka að vera þegar maður eignast nýja græju :)

En já okey meira um útileiguna... þetta var náttúrulega gargandi snilld.. fengum gott veður og góðan mat.. fínt að komast svona aðeins út fyrir bæjarmörkina að slaka á :)



Það réðst á mig mífluga sem ég tæklaði bara með því að borða ;)



Samt ekki fyrr en hún var búin að fá mig til að veltast um í grasinu aðeins.. erfiðir þessir fokkerar :)


Þetta var frábær ferð takk fyrir hana kids :)

Þar til næst lifið heil..

This page is powered by Blogger. Isn't yours?