<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, nóvember 30, 2006

-Stubit Hulda-

lenti í frekar spes atviki í gær... var í mat hjá Ellu og við vorum að rifja upp hvenær við fórum síðast í bíó. Komumst að þeirri niðurstöðu að ég hefði síðast farið með henni og Alla í bíó en mundum ekki hvaða mynd það hefði verið... jú svo kvikknaði á perunni hjá mér og ég fór að lýsa fyrir Ellu hvaða mynd við hefðum farið á... var með atriði úr myndinni alveg á hreinu... Ella hins vegar var ekki að fylgja... svo við ákváðum að fara inn á þessa ágætu síðu og finna út hvað myndin hefði nú heitið því ég bloggaði um þessa ferð okkar... nei heirðu þá kemur bara í ljós að við vorum á allt annari mynd en ég var að lýsa ... ég er ekki einu sinni viss um að ég hafi nokkurntíman séð þessa blessuðu mynd sem ég var svo brösulega að koma Ellu í skilning um að við hefðum séð! hef ábyggilega bara séð auglýsinguna frá henni og var með þá ræmu alveg á hreinu.... þetta er alveg búið hjá mér.. þarf að fara að taka lyf við þessu held ég :)


Annars hefur verið tekin ákvörðun um afmæli gott fólk.... ég ætla að halda upp á afmælið mitt 16 des á að sjálfsögðu Hverfisbarnum:) þemað verður "MAFÍAN" svo það verður massa mafíu party á hverfis 16 des gott fólk :) skyldumæting :)

já og heyrðu svo er líka búið að jólaskreyta þann ágæta stað, svo um er að gera að bregða undir sig betri fætinum um helgina og skoða undrin og stórmerkin :)

-þar til næst lifið heil-

This page is powered by Blogger. Isn't yours?