<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, maí 23, 2007

-Vá skulda alveg heila viku-

Sorry Kristrún ég náttúrulega verð að halda áfram að blogga ef ég ætla að halda þessum titli sem þú smelltir á mig um síðustu helgi :)
Annars var rosa gaman að sjá ykkur Inga.. og bíð spennt eftir útskriftinni þinni :)

Annars er þessi vika svo sem ekki búin að vera neitt súper merkileg...

vann eins og góðum stúlkum sæmir um helgina.. ótrúlega fine party hérna á laugardaginn.. verður endurtekið aftur ekki spurning.. stelpan reyndar slasaði sig smá á laugardaginn.. hoppaði yfir barinn inn í slagsmál með þeim afleiðingum að togna í ladsanum fína... verður spennandi að fara á æfingu til Konna í dag og sjá hvað hann segir.. því þrátt fyrir að ég haldi það þá er ég víst ekki superman.. Sunnudagurinn var ýkt nice.. vorum hérna niðri á hverfis nokkur af staffinu... áttum náttúrulega bara að vera heima sofandi en gaui var að mála og strákarnir að sækja græjurnar sína og þetta leistist upp í spjall og kæruleysi :) restin af sunnaranum var nú bara tekin í afslöppun... fór reyndar rosa seint að sofa.. búin að stunda það alla vikuna.. svo ég er að verða semí þreytt.. sem reyndar er allt í lag.. engin vinna um helgina svo maður notar hana bara til að ná sér...

Ívan Atli litli fór í hálskyrtlatöku í gær og ég fór í dótabúðina áður en ég kíkkti á hann.. missti mig smá.. keypti tvo gröfubíla og einn bangsa handa krúttinu.. það var svo ótrúlega krúttlegt að sjá hann þegar ég kom með þetta.. settist alveg upp í rúmið og það kom smá bros.. hann reyndi svo með rosalegum átökum að leika smá en sofnaði um leið og lúllaði með bapelsínugulu bílana allan daginn :) Stelpan kann á svona labbakúta :)

Er annars bara working eins og fín frú og ætla að halda því út vikuna.. svo er bíóferð á laugardaginn plönuð.. ætla að reyna eftir fremsta megni að sofna ekki núna :)

þar til næst lifið heil...

miðvikudagur, maí 16, 2007

-Þetta blogg er tileinkað Kristrúnu-

Ég held ég megi nú alveg blaðra þessu... En Kristrún og Ingi eru sem sagt búin að kaupa íbúð.. eru orðin þrusu fullorðin bara :) En það er hins vegar ekki ástæðan fyrir því að Kristrún á þessa færslu.. ooo neii... Sjáið nú til.. hún er nefninlega snilldar kærasta.. Þar sem að við Ingi erum nú bestu vinir þá hefði það alveg getað farið þannig á einum eða öðrum tímapunkti eins og ég hef svo milljón skrilljón sinnum lent í ... að kærustur strákanna verða afbríðisamar út í mig... þeim hefur í gegnum tíðina verið eitthvað ógnað af því að ég geti hálvitast með þeim daginn út og inn án þess að vera að reyna við þá.. En hún Kristrún okkar sem fékk nóta bene í andlitið bara mjög snemma að ef hún ætlaði að vera með Inga þá kæmi ég með í pakkanum.. henni fannst það bara töff... Svo Kristrún þú hefur verið kosin með afgerandi hluta atkvæða (var reyndar bara eitt) kærasta ársins :) con grat með þennan sigur og verlaunin eru þau að bjóða mér í pönnukökur þegar þið flytjið inn :)

þar til næst lifið heil...

þriðjudagur, maí 15, 2007

-Snilldar mynd-

þetta er næsta mynd sem þið verðið að taka á videoleigunni... þetta er algjörlega frábær mynd.. þe. ef þið hafið áhuga á svona myndum.




þar til næst lifið heil..

-Nice-





kisur eiga að drekka mjólk :)

þar til næst lifið heil...

-Karma-

það er hinn frægi mai mánuður.. mánuðurinn sem hinir svokölluðu alvöru foreldrarnir eiga afmæli í... og mánuðurinn sem ég einhvernvegi alltaf slasa mig... Finnst líklegt að það sé vegna þess að ég er alltaf á hverju ári að rembast við að hugsa ekki um að þau séu til og finnst ég alveg ósigrandi.. en hvað ætli maður komist lengi upp með þennan hugsunarhátt.. kannski maður ætti bara að taka þessu fagnandi og segja "Til hamingju með daginn Foreldrar mínir".. á þessum tíma í fyrra lá ég á flísalögðu gólfi eftir að maður réðst á mig.. endaði með tjónaskýrslu á slysó og 7 mánuði af því að geta ekki hreift á mér bakið.. svo í ár ætla ég bara að sýna smá lit og hugsa bara semí jákvætt til þessara horklessa :)

þar til næst lifið heil....

mánudagur, maí 14, 2007

-Að gera það sem manni finnst skemmtilegt-

Nýja stefnubreytan í lífi mínu er að reyna að gera eins mikið af því sem mér finnst skemmtilegt og ég get.. Td. er ég byrjuð að kenna sund sem er algjörlega brjálæðisleg gaman :) og smellti mér á sundæfingu áðan.. sá alltaf rosalega eftir því að hafa hætt og því ekki að byrja bara aftur.. get alveg verið nett í Görpunum :) það tók mig ekki nema ca. 30 sek að smella inn í hópinn og þetta var rosa fínt..

nú er bara að gera meira af svona hlutum.. spurning um að kannski vinna á loftrhæðslunni.. taka fallhlífastökk eða teigjustökk á þetta :)

þar til næst lifið heil...

-Stór spurning og erfitt svar-

fékk spurningu um helgina frá vinkonu minni.. (stelpur eru alltaf að pæla svo mikið)

hljómaði svona: Ef þú myndir finna mann ákkúrat núna og festa ráð þitt er þá eitthvað sem þú myndir sjá eftir seinna að hafa ekki gert meðan að þú varst ein?

og ég svaraði eiginlega strax nei. svo fór ég að hugsa... er ég viss... er eitthvað meira sem ég á eftir að "rassgatast ein í" hvenær veit maður svona bara.. veit maður það bara yfir höfuð nokkruntíman? tekur maður ekki bara sénsinn og vonandi verður allt fine ? ég held allavega að ef það er eitthvað sem maður á eftir að gera og á að gera þá gerist það sama hvort maður er einn eða ekki... hlýt að enda með einhverju sem ég á eitthvað sameiginlegt með og þar af leiðandi á ég ekki eftir að sitja bara heima að prjóna það sem eftir er .. ekki satt ? :)

þar til næst lifið heil...

fimmtudagur, maí 10, 2007

-þreyttasta manneskjan á svæðinu-

Vá það er svo ótrúlega gott að leggjast upp í rúm þegar maður er þreyttur, nudda táslunum í sængina og kúra sig inn í koddann... það er einmitt það sem ég ætla að fara að gera núna.. fannst rétt að deila því með ykkur :) gn.

þar til næst lifið heil...

miðvikudagur, maí 09, 2007

-Frammhaldsagan góða-

JeJe komið að því að klára þessa sögu frá köben :)

sem sagt eftir djammið góða röllti stelpan heim (vissi ekki að það væri ekki æskilegt) fannst sjúklega góð hugmynd að stoppa bara í 7/11 neðst á strikinu, kaupa vatn og snakk og röllta svo bara heim (tekur svona 30 mín) sendi nokkur sms á leiðinni í góðum gír og svona.. það hefði enginn þorað að ræna mig :) hehe
Þegar heim var komið kom svo í ljós að Rúna sem ekki komst í bæin mundi ekki eftir því að hafa talað við mig í síman fyrr um kvöldið og reyndar bara ekki einu sinni hvernig hún komst heim yfir höfðu.. og ennþá meiri ráðgáta fyrir henni var af hverju Stína var eiginlega sofnuð :) þetta var alveg óstjórnlega fyndið allt saman...

sunnudagurinn var svo svoldið slappur eða svoleiðis.. við vöknuðum reyndar allar snemma.. rölltum okkur niður á strik á Mc.Donalds og Kenny og borðuðum þar.. fórum svo í einhvern garð þar sem við sofnuðum allar eins og skötur þangað til að köngulær fóru að ráðast á mig.. skil það ekki.. þær létu stelpurnar alveg vera en herjuðu á mig í stríðum straumi...

Stelpurnar brugðu á leik aðeins á íslansbryggju :)


við ákáðum svo að fara út að borða með Vigni og í Bíó þar á eftir ... fórum í voða fínt bíó á Spiderman 3 en ég get því miður ekki sagt ykkur hvernig myndin var því ég sofnaði eftir ca. 15 mínútur... ég á við smá bíó svefn vandamál að stríða :)

Við Vignir á leið í bíó...



stelpurnar þurftu svo að fara að vinna snemma á mánudagsmorgun svo ég röllti bara með töskunar niður á lestarstöð þar sem ég setti þær í geymslu og fór með Fríðu á strikið í morgunmat og smá meiri sól.. Röllti við hjá Jan til að segja hæ og svo var bara haldið upp á flugvöll..

og viti menn nú er maður komin heim í gömlu rútínuna og frekar tanaður bara eftir hina ljúfu köben...

snilldar ferð .. takk fyrir mig stelpur

þar til næst lifið heil...

þriðjudagur, maí 08, 2007

-Ferðasagan fína :) -

I´m In love.. ég held að ég sé orðin ástfangin af kaupmannahöfn.. þetta er svo mikil snilldar borg að það hálfa væri hellingur! Sól Sól Sól og sumar þar ákkúrat núna.. þetta er svo nice.. vakna og labba út í sólina og sumarið.. og þennan líka skemmtilega mórall sem er þarna.. hægt að labba eða hjóla allt og aldrei neitt vesen...
allavega var þetta mín upplifun í þetta skiptið..
en svo maður komi með ferðasöguna þá er hún svona...

á föstudaginn sat ég eins og skata á ferðatöskunni minni fyrir utan Leifsgade 4 og beið eftir Rúnu með lyklana... röllti svo upp á 5 hæð með töskufokkerinn og reif mig úr fötunum í hlírabol og stuttbuxur og niður á strik (sem var reyndar rosalega langt labb í boði smá rangara upplýsinga frá Hildigunni) svo nice að liggja svo á íslandsbryggju og sleikja sólina... svo var ég meðvitundalaus frekar snemma það kvöld.. reyndi eftir besta megni að halda mér vakandi en augnlokin unnu að lokum...

laugardagurnn var snilli... við stelpurnar tjilluðum framanaf degi á bryggjunni, fórum svo aðeina niður á strik þar sem ég hitti Fríðu og við fórum í smá sjopping ferð... planið var svo að hitta stelpurnar aftur og fara með þeim á djammið um kvöldið en þær áttu að fara á árshátíð hjá Dominos svo að ég og Fríða fórum út að borða á Caffe Ketsjup hjá honum Bjarne sem eins og glöggir vita var að vinna á Oliver með Fríðu.. þetta var snilldar matur og þaðan var haldið á tjúttið... fórum á mesta Sellfoss-stað allra tíma.. held að það séu ekki einu sinni svona staðir á Selfossi... ég get svo svarið fyrir það.. þarna voru strákar að dansa uppi á borðum og syngja eins það væri enginn morgunndagur... þetta var frekar fyndið... við ákáðum að yfirgefa Selfoss að sinni (staðurinn hét reyndar Heidys) og rölltum á Old English Pub í von um að kannski rekast á Jan Eða Karsten ... þar sátum við í góðum gír þegar að tveir strákar byrja að horfa ansi mikið á okkur.. við hugsum með okkur að þetta hljóti bara að vera einhverjir danskir guttar að skoða íslensku stelpurnar og pælum svo sem ekki mikið í því meir fyrr en Fríða fer á barinn og pantar og þá kemur upp úr þeim á íslensku .. við könnumst svo við vinkonu þína... Fríða í fáti ullar út úr sér að við vinnum á bar heima og að þeir verði bara að komast að því sjálfir hvar...
kemur svo til mín skelfingu lostin yfir því að þeir hafi kannski heyrt allt sem við vorum búnar að vera að segja(sem svo sem var ekki neitt merkilegt).. Ég svo vippa mér á barinn stuttu seinna og þeir slummpa á hvaða stöðum við erum að vinna á og bjóða okkur með á næsta pubb.. við eins kurteisar og við erum segjum já og rölltum af stað með þeim... svo byrja þeir að ræða aðeins við okkur og þá kemur í ljós að þeir eru búnir að vinna þarna og búa í 5 ár.. what the f... þeir kannast ekkert við mig.. þetta var lína.. ooojjjbaraaaa... en svo kemur á daginn að þeir voru STJARNFRÆÐILEGA leiðinlegir greiin.. ég hélt að þetta væri bara ekki hægt... við í mikilli klænsku stingum af þegar þeir ekki taka eftir og hlaupum eins og við eigum lífið að leisa... not our finest moment en þetta var bara ekki hægt... Heirðu menn hefðu haldið að þetta væri komið nóg af rugli fyrir eitt kvöld en nei þá kemur maður upp að mér á strikinu og spyr mig hvað klukkan sé...

hann... Ved du hvad klokken er?

ég.. Humm Yes it´s midnight

hann.... Ok. takk.. du ikke Dansk ?

ég... No I´m from Iceland..

hann... ok.. og snakker dere ikke dansk pa island?????

ég... No we speak Icelandic

hann... ok takk.

labbar í burtu... kemur svo aftur eftir smá og reyndir að kyssa mig þarna á miðju strikunu... hvað í helv... hvernig dettur fólki svona rugl í hug.. ég þurfti að berja mannin af mér... !!!!!!! úff þvílík lífsreynsla...

Stína og Rúna komust svo aldrei til að hitta mig þetta kvöld sökum ölvunnar....

restina seinna...

þar til næst lifið heil...

þriðjudagur, maí 01, 2007

-Eðlilegt sjálfsálit eða hroki-

Það hefur verið ansi mikið til tals í kring um mig þessa dagana og reyndar vikurnar ... hvenær er eitthvað hætt að vera "heilbrigt sjálfsálit" og orðið bara hreinn og beinn hroki ? Stelpur segja að þær séu feitar til að fá til baka -nei láttu ekki svona- lágt sjálfsálit þar á ferð, en getur þetta verið öfugt líka... ég er svo sjúklega sæt! -umm ert ekki viss um það en vonar að ef þú hamrar nógu mikið á því þá farir þú að trúa því ? er hroki þá kannski ekki til ? er þetta allt bara spurning um að fólk sé í vörn fyrir náunganum ?

humm pæling allavega..

þar til næst lifið heil...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?