<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, ágúst 30, 2006

-Miðvikudagur-

Eleonora er 23 ára í dag.. óskum henni til hamingju með það :)

Thule og þú á hverfisbarnum annað kvöld ásamt Steini Ármanni og Sveini Waage ! skildumæting í stuðið! 1000 kr inn og thule með!

Svo það sem mestu máli skiptir nýtt Tatto á morgun :) hell jea

-þar til næst lifið heil-

þriðjudagur, ágúst 29, 2006

-Gamlir kallar með hatt og gamalar konur off-

Nú er það ekki þannig lengur eins og manni var kennt í ökutímum í gamladaga að maður ætti að passa sig á gömlum köllum með hatta og gömlum kellingum í umferðinni... nú er það Gamlar kellingar í símanum með stefnuljósið á! sem maður þarf að vara sig á..... hélt að ein slík myndi keyra mig niður á sæbrautinni í dag... fjúff þetta eru stórhættuleg fyrirbæri!

Helgin var ljúf á hverfisbarnum... alveg hreint glimmrandi stemming í bænum.. brjálað að gera hreyn snilli út í gegn!

Ótrúlega er maður búin að lenda oft í því að vera að senda sms eða e-mail og fólk misskilur mann... það er svo hrikalega að vanta í þessa tækni að geta sett alvöru smilikalla sem segja til um nákvæmlega hvernig maður er að meina hlutina.. fjúff.... pæling fyrir einhvern í tölvubransanum :) Raggi...

-þar til næst lifið heil-

laugardagur, ágúst 26, 2006

-Vá hvað ég er þreytt!-

Var að mæta í vinnuna.... klukkan er að slá í hálf átta að kvöldi og við eigum von á sirka 150 manns í party.... mig sem langaði svo að fara í party til Dabba í kvöld.... ég er búin að vera að rembast við að verða ein af strákunum í þessum hópi og loksins þegar það tekst þá kemst ég ekki.... svekkjó!
kannski á ég heldur ekki að reyna að verða ein af strákunum og halda mig bara frekar við það að vera stelpa :)

-þar til næst lifið heil-

föstudagur, ágúst 25, 2006

-Ótrúlegt hverju maður getur lent í á einum degi-

Fór í Salarlaug í ræktina í morgun sem er nú ekki frásögu færandi (Dabbi beilaði eins og vanalega) nema hvað að þegar ég var búin og ætlaði að skella mér í sturtu þá stendur bara ein kjellan og er að þurka sér með hárblásaranum... við erum að tala um ÞURKA sér.... ég er ekki viss um að þið séuð að gera þetta nógu myndrænt í huga ykkar... undir höndum, skellti brjóstunum upp á herðablöð og þeytti blásarann af fullum krafti á öll herlegheitin.... er þetta trendið í dag ? á maður að hætta að taka með sér handklæði og bara ráðast til atlögu með blásaranum ? -Ég bara spyr....

Svo fór ég í nudd í annari sundlaug í dag.. (suðurbæjarlaug í hafnarfirði) og þar lenti ég í öðru svona skrítnu atviki... var í útiklefanum þar sem fyrir þá sem ekki vita eru 3 sturtur og venjan er að fara í sitthvorn endan ef um tvær kjellur eru að ræða í einu svo að vatnið sullist nú ekki á mann úr sturtunni frá hinum... það er ekki sérstaklega spennó að baða sig upp úr skít annara... en allavega þá er ég í makindum mínum að þvo hárið og ein kjella kemur og smellir sér í sturtu og ákkúrat í sturtuna við hliðina á mér... og gott fólk ég var með henni í sturtu fyrir ALLAN PENINGINN!!!! hún var ekki einu sinni að reyna að fara fínt í þetta.. ég sver að ég fékk meira af hennar bunu yfir mig heldur en minni.... hvað er þetta maður er ekki hægt að fara í lauginna neinstaðar lengur nema að eiga á hættu að sjá kellingar með hárblásarann í klofinu eða vera með þeim í sturtu ?!? argh

Annars var umferðin á stórreykjarvíkur svæðinu í dag eins og ferð á klepp... það voru árekstrar á öðrum hverjum ljósum, gamlir kallar að troða sér inn á milli ALLSTAÐAR! svo það var pottþétt ekki hægt að hreyfa sig og ég búin að vera á spani í allan dag.. ekki var það nú til að bæta stemmarann hjá mér.....

Ekki að ég sé neitt að vera eitthvað neikvæð.. þetta var alveg fínn dagur líka... Nuddið var snilli og það stefnir allt í fína nótt hérna á hverfisbarnum....

ooo well sumir dagar eru bara svona :)

-þar til næst lifið heil-

miðvikudagur, ágúst 16, 2006

-komin heim fra köben-

það var fanta fjör í kaupmannahöfn.. gæti bara vel hugsað mér að búa þarna :) kannski maður skelli sér bara í háskólann þarna... aldrei að vita.. Vignir er ekki stemmari fyrir því að fá mann þanngað :)

annars vildi ég bara segja hæ og er komin svona svo þetta yrði ekki eins og eftir boston ferðina góður :)

þar til næst lifið heil...

fimmtudagur, ágúst 10, 2006

-Nau nau bara komin heim frá Boston-

Já gott fólk það tók ekki nema eitt ár að byrja að blogga aftur eftir blessuðu ferðina til Boston :) Það var fanta fjör þar að versla get ég sagt ykkur, en ég man hins vegar ekki neitt hrikalega mikið eftir smáatriðum þaðan þar sem það er jú heilt ár síðan ég var þar :)

Annars er ég nú bara að vinna eins og fín frú þessa stundina... þe. er niðri á Hverfisbarnum að taka í móti vörum... það er víst eins gott að eiga nóg að áfengi fyrir landan.. það er jú einu sinni gay-prid um helgina og svona :)

ætla að skella mér til Köben um helgina.. (vona að það verði ekki til þess að ég skrifi ekki aftur í heilt ár :) nei nei segi svona það á bara að skoða aðeins þetta land Danmörku sem allir eru að tala um.. heimsækja aðeins Steina bróðir og hafa það svo nodó :)

segi meira frá þegar ég kem heim.. ég lofa að þessu sinni að standa við það :)
-þar til næst lifið heil-

This page is powered by Blogger. Isn't yours?