<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur, janúar 30, 2005

-taka 2-

fórum aftur út í gær... sjitt þetta var rosaleg helgi! sofa núna er dauð!

þar til næst lifið heil....

laugardagur, janúar 29, 2005

-djamm í gær-

full... sjitt allt of full í gær!!! boston liðið rúllaði þessu upp fyrir okkur!


þar til næst lifið heil...

laugardagur, janúar 22, 2005

-fjör í gær-

mætti í gellufötunum í vinnuna í gær.. djö hvað ég er að standa mig í þessu áramótaheiti!
fór á gaukinn eftir vinnu í morgun... búin að dansa eins og vitleysingur alla nóttina í vinnuni reyndar... gummi gonsales var að gera góða hluti svo við vorum í góðum gír... stansaði reynar ekki mjög lengi ... tók við skutlerí út um allan bæ heim með strákana.... komið við á bsí þar sem stelpu greiin eru ábyggilega ennþá að jafna sig eftir mig og Dassa með myndavélina... tekin ákvöruðun um að fara á goldfinger í fyrramálið þegar við erum búin.... við "stákarnir" .....er bersínilega orðin ein af þeim... veit nú samt ekki hvernig það fer.... meira um það seinna.....

strákarnir : hei eigum við að skella okkur á goldfinger ? emm nei förum heim... gerum það á morgun....

ég : jebb ég er til...

strákarnir : þú getur líka bara dansað fyrir okkur! en þú verður að vera salæfkjoigja

ég : ha verð ég að vera berfætt?!?

strákarnir : nei hulda hlusta ! ber! þú veist allsber...

ég : ó... ég skildi hitt heldur ekki alveg....

þar til næst lifið heil....

fimmtudagur, janúar 20, 2005

-hvaða litur ertu?-



YELLOW



You are very perceptive and smart. You are clear and to the point and have a great sense of humor. You are always learning and searching for understanding.




Find out your color at Quiz Me!



þriðjudagur, janúar 18, 2005

-hvernig er maður að standa sig ?-

það þyrfti eiginlega einhver að vera mér við hlið til þess að dæma um hvernig mér gengur með áramótaheitið... þe. að fara út á lífið öllum stundum....

sko við bryndís erum búnar að gera það að mánudagshefð að fara í pool sem er mjög gott.. skellum okkur út á 8-una hérna hinum megin við húsið... getum röllt þarna yfir (höfum reyndar aldrei labbað þetta.. ekki gott)

ég er búin að taka eina djammhelgi það sem af er árinu.. hún endaði eiginlega samt á vegamótum í trylltum dansi með stóra bróðir (takk fyrir það raggi) sem var reyndar þrusu fjör.. við vorum þó sammála um það að ekki myndi ég nú mikið veiða út á að hafa hann mér við hlið á dansgólfinu.... en þrusu gaman samt sem áður...

svo var náttúrulega nýársdjammið líka.. þannig að þetta er kannski ekki svo slæmt meðaltal eða hvað ? einhver annar að dæma um það.....

veit samt ekki með fimmtudagana hvernig það fer.. hef þurft að vinna seinustu tvo sem er eiginlega að vera úti er það ekki... ???? vinna á bar= er ekki heima að slæpast í náttfötunum :)

fór til tannsa í dag... kauði var ekki sáttur með mig.. búin að brjóta jaxl með þessu pinnadrasli mínu... varð því fullorðin í fyrradag og tók hann bara úr! nú er þetta allt að koma ;)

er að horfa á innlit útlit ! NOTA BENE í algjörri neið það er ekkert í sjónvarpinu.. guð hvað þetta er leiðinlegur þáttur núna! það er búið að taka burtu alla sætu strákana og setja í staðin einhverjar kellur sem eiga það sameiginlegt að kunna enganvegin að koma fyrir sig orði! ! hvað er að verða um skjá ein.. .hann er alveg að missa það.. þetta var stöðin sem rúllaði en nú sína þeir bara ömurlega plebba þætti og fótbolta út í gegn... obboslega sniðugar hugmyndir hjá krakkarnir... halló!!! !hver talar svona!!!!!!!!!!!! og það í sjónvarpi!

en þar til næst lifið heil...

-svöng-

er einhver sem er ekki búin að borða kvöldmat ? call me!

þar til næst lifið heil...

mánudagur, janúar 03, 2005

-innidagur í dag-

það verður horft á vindeo heima hjá mér í allan dag... ef það er einhver að vellta því fyrir sér hvað að gera hérna :)

ég var svo hrædd þegar ég var að keyra í vinnuna í morgun að ég hélt ég myndi deyja ! svo ég hef ákveðið að gera ekkert nema horfa á video í dag :)

ps. ég er að verða hörku bloggari..

þar til næst lifið heil...

sunnudagur, janúar 02, 2005

-sunnudagur á nelly´s-

ég: nei þú færð ekki afgreiðslu þú ert of fullur.

hann: what?

25 mínútum seinna.....

ég: jæja ég er búin að loka farðu út

hann: what?

ég: farðu út

hann: what?

ok prufum aftur

ég: I´m closing pleas go out

hann: why ?

ég: I´m closing go out!

hann: fuck you

ég: go out!

hann: fuck you!

ég: out!!!!!!

hann: fuck you!!!!

þriðji aðili: ég var einu sinni dyravörður ég skal redda þessu (með bjöguðum útlenskum hreim)

ég: láttu hann vera og vertu kjurr þar sem þú ert.

þriðji aðili: liftir kauðanum upp og labbar með hann út... hann dettur...

ég hringi á lögregluna... sem kemur að vörmu spori og hriðir upp mannin en þó ekki fyrr en hann er búin að skella hruðinni í trínið á mér og handleggsbrjóta mig næstumþví...

löggan: hvað skeði eiginlega hérna... ?!?!?

ég: hann sagði mér að bíbbbb mér!

löggan: ok, við sjáum um þetta vertu sæl

ég: ok, takk veriði sælir

stemming.is

þar til næst lifiði heil...

laugardagur, janúar 01, 2005

-Uppgjör-

ætli það sé ekki við hæfi að gera upp árið svona eins og hinir... svo maður sé ekki alveg ferlega lummó. klukkan er 4 og ég nýkomin heim af nýjársdjamminu... sem var jú bara alveg ágætt en við Bryndís vorum að velta því fyrir okkur hvort við værum orðnar of gamlar fyrir þetta... klukkan er jú fyrir það fyrsta bara 4 og ég er komin heim upp í rúm og í náttfötunum og alles.... spurning.. okkur fannst við of ungar á nasa þar sem stuðmen voru samt sem áður að roka feit... ég ELSKA röggu gísla. hún er að deyja úr nettleika.... en aftur að sögunni.. þá fórum við næst á vegamót þar sem við vorum vissar um að finna eitthvað sem var ekki eins gamalt og eftir rúmar 20 mínútur í röð komumst við inn.. og hvað ! það var mökka leiðinlegt þarna.... er þetta merki um aldur ? tell me...

en já árið...

það byrjaði fínt man nú reyndar ekki alveg hvernig janúar og febrúar voru.. jú hellingur af vinnu held ég... byrjaði að vinna á nellys og svona...

svo var það útlandaferð númer eitt á árinu í mars.. fanta ferð sem stóðst væntinar með meiru... náði mér meira að segja í eitt stykki af ítalskri fjölskyldu sem er búin að spila frekar stóran hluta í árinu.. þá er ég að sjálfsögðu að tala um ósk, dómí, maríu og gigi...

svo var útskrift í mai.. fín upplifun þar, gott að vera búin með þetta stúdentspróf og svona...

já byrjaði að vinna í hafnarborg.. tók sumarið þar með stæl og reyndi að læra að byrja að drekka kaffi... sem gekk mis vel skulum við segja..

útlandaferð númer 2 dúndrandi ferð þar á ferðinni... sardenía tekin með trommpi! kom brún og sæt heim... var að hugsa um að vera eftir þarna bara... við elskum ítalíu núna :) ekki að ég hafi ekki gert það áður :)

eftir sumarið tók bara við meiri vinna... og vinna og vinna...

jú skellti mér á eina tónleika á árinu.. pink var að sjálfsögðu rosalega hrikalega flott...
einn fótboltaleikur á árinu líka... ísland vs. ítalía... ísland vann mér ekki til mikillar gleði say no more...

eignaðist tvo ketti á árinu... ættleiddi jökul og vælu.... ágætis skinn bæði tvö spurning um að setja hana á róandi samt... veit ekki, ætli það megi við svona ketti ?

sem sagt allt í allt dúndrandi fínt ár bara...´

þakka öllum fyrir gott og innihaldsríkt ár og hlakka til að takast á við það næsta með ykkur...

þar til næst lifið heil...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?