<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, mars 25, 2004

-Já nei ekki dauð-

nei nei ég er ekki dauð ef þið hafið verið að velta því fyrir ykkur.. það er bara búið að vera hellingur að gera.. brjálað að gera í vinnuni og svona.. (öllum vinnunum :) )

hey var að vinna á kaffihúsi í dag.. bara svona einu sinni.. ekkert smá gaman.. var alveg að gera góða hluti þarna held ég :) væri góð kaffistúlka ;) en hvað er málið veit enginn um nýja vinnu handa mér! eruð þið ekkert að standa ykkur kæru vinir...! hvernig er þetta eiginlega!

Það er annasöm helgi framundan.. það á að vinna eins og vanalega.. en svo er spurning um að skella sér á eins og eitt djamm á laugardaginn.. hvað finnst ykkur um það gott fólk... Skjöldur þú lofaðir mér tjútti so take out the dansing outfit ;)

Var í klipp um daginn.. komin með rendur aftur :) we like :) ætli það hindri mig í að fá vinnu ? er það ekki spurning um hið innra mig :)

segi nú bara svona... en ég er farin í bili...

þar til næst lifið heil....

þriðjudagur, mars 16, 2004

-VINNA-

veit einhver um vinnu handa mér á daginn! ég get unnið frá 9 til eitthvað! mig vantar eitthvað að gera á daginn... láta mig vita takk :)

þar til næst lifið heil....

fimmtudagur, mars 11, 2004

-Komin heim-

jæja gott fólk þá er maður komin heim og þetta var vægast sagt geðveikt.....

það var byrjað á því að fljúga í helling af tímum og lent í smá tíma á Nýfundnalandi sem er gott fólk algjört krummaskurð, það er ekki eins sinni hægt að fá tímarit þar eða neitt.. hefði getað keypt gólfkúlu með mynd af kanadíska fánanum en lét það ógert... :)

svo var lent í Varadero sem var geggjað.. allt saman voða flott... þetta er samt meira svona ferðamanna staður eiginlega bara hótel og strandir og því var haldið upp í rútu þar sem brunað var til Havana þar sem fjörið byrjaði.. þar var komið sér inn á hótel þar sem við fengum bara alveg ágætis herbergi og allt voða fínt, lentum á 4 hæð þannig að vatnið komst upp alla leið :)

fyrsta kvöldið var farið á svona "heima" veitingarstað sem var voða spennó, fengum svona alvöru kúbverksan mat.

svo var skoðað og skoðað allan tíman á meðan við vorum.. fór að skoða vindlaverksmiðjur og akra, allskonar söfn og svona.. fór meðal annars á byltingarsafnið og byltingartorgið sem var allt voða spennó og merkilegt..

fórum ekki mikið að djamma, fórum eitt kvöld á "klúbb" þar sem ég hefði aldrei þorað að fara út á dansgólfið fyrr en eftir 5 ár í danskóla að læra Salsa hérna heima.. það kunna allir að dansa þarna úti.. þau fæðast með þetta í blóðinu :)

það var ekki mikið um mat þarna sem var mikið bragð af.. ég hélt mig við kjúkling og vatn allan tíman.. sem sagt bara kjúlli í 8 daga.. þar sem að hann var líka í flugvélinni á leiðinni út og heim.. hve kaldhæðnislegt er það.. en það var ágætt.. gerði tilraun til að fá snakk þarna út það tók mig ekki nema 2 daga að finna búð og þar var lagerinn einn snakkdallur þannig að "allur" lagerinn var keyptur :)

en það kemur meira seinna..

þar til næst lifið heil......

mánudagur, mars 01, 2004

-20-

það eru 20 mín í brottför héðan að heiman.. je hvað þetta er spennó :)

miss you all :)

þar til næst lifið heil ....

-Dadara-

skaust til kúbu... bið að heilsa í bili...

þar til næst lifið heil...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?