föstudagur, september 19, 2003
- Góðan daginn hvað? -
Já þið megið reyna að sannfæra mig um að það sé góður dagur í dag en nei ég held nú ekki! Stúlkan mætti hress og kát við dyr Svövu í morgun og kippti henni með sér í skólan, sem átti að samanstanda af tímum frá 8:05-15:15 með einu stykki af eyðu.. jújú svo sem ekki of slæmt af föstudegi að vera.. en nei gott fólk að sjálfsögðu STENST aldrei neitt í þessum skóla! það vill nefninlega svo til að líffræðikennarinn minn er erlendis og fékk engan til að kennar fyrir sig sem kannski er ekki svo slæmt þannig að við fengum eina eyðu til viðbótar... fór heim og skellti í mig smá næringu og mætti svo galvösk til starfa í þriðja tíma.. oooooooooooo nei þriðji tími fellur niður og kennarinn ferlega gleymdi bara að segja okkur það í gær... og ekki nóg með það heldur er próf í næsta tíma sem tekur 5 mínútur og hvað haldiði að taki svo við annað en EYÐA! og svo seint og síðar meir klukkan 14:15 þá loksins er eðlisfræði hjá honum Baldri félaga sem kennir í mesta lagi í 30 mín... ég sem sagt er búin að eyða öllum deginum í ekki neitt!!!!!!!! og þegar hann er á enda (þe. skóladagurinn) verð ég búin að sitja tíma sem samanstanda af ca. 1 tíma og 35 mínútum á 8 klukkutíma tímabili! og margir myndu kannski segja á þessum tímapunkti; Hulda mín notaðu bara tíman til að læra en nei gott fólk það er svo gjörsamlega búið að slíta þennan dag í sundur að það er ekki glæta að ég notfæri mér þessar slittnu mínútur í að ná í einhverja skruddu! fannst ég verða að koma þessu frá mér þar sem þetta hvíldi mjög svo á mér.
Annars ef við reynum að ýta þessum hugsunum frá okkur þá er komin helgi svona hvað á hverju og planið er að slappa af og hafa það gott svona til tilbreytingar :) fara í bíó eða á kaffihús, liggja svo með tærnar upp í loft og bora í nefið. :)
gott plan fyrir góða helgi :)
en að sinni lifið heil og góða helgi :)

fimmtudagur, september 18, 2003
Hallo hallo dugnaðurinn er að drepa stelpuna það er bara verið að massa hérna tvær ritgerðir á dag.. hvorki meira né minna :) það er allt að gerast :) Flensborg ætlar að ganga að mér dauðri eftir þessa önn.. það er meira að segja farið að sjást til mín á bókasafni skólans að honum loknum að læra.. Ég er ekki að spauga með svona hluti...
maður þarf að hafa sig allan við til þess að halda í við blessaðan stærðfræðikennarann.. það eru sko engar tilviljanir hjá henni þetta eru allt kraftaverk! og engin smá.. reikna með því að vera svona sirka 4 daga með skiladæmin frá henni.. það er eins gott að fara að byrja á þeim.. var að hugsa um að sækja um nýtt lögheimili bara... 220 Flensborgarskólinn.
En gott fólk í gær var ég svo heppin að verða fyrir þeirri óvæntu og skemmtilegu ánægju að eignast nýjan geisladisk.. og gott fólk ekki bara hvað disk sem er.. ooo nei nei heldur funkmaster 2000 diskinn... jújú hann Sverri kallin kom sko sá og sigraði allt sem hægt var í gær með að smella þessum afburða góða disk inn um lúguna hjá múttu... geri aðrir betur.. þannig að á leiðinni í skólann í morgun var sko aldeilis hægt að hlusta á tónlist skal ég segja ykkur... og ekki bara það heldur eigum við áritað umslag af hinum magnaða trommara Sverri ;) takk kallinn þetta var mega :)
Heyrst hefur að Skvísan í frakklandi sé bara alveg að massa þessa dvöl sína og sé að fara á kostum í frönskum endingum.. til lukku með það gæsin þín þetta kemur allt sama :) við erum voða voða stollt af þér :) Annars er nú svo sem ekki mikið að frétta af okkar auma hóp.. sem reynar virðist eitthvað vera farin að hanga á bláþræði skulum við segja... en nóg um það hér..
Í morgun þegar ég hætti mér út til þess að fara í skólan áttaði ég mig á því að það er komin eða er að koma VETUR held ég og ER ekki sátt við það... það var svo hrottalega kalt í morgun að ég hreinlega held að nefið hafi ætlað að detta af mér á leiðinni út í bíl.. það er ekki einu sinni komin nóvember.. com on!!! smá gott veður lengur... plís.. og ekkert grobb Eleonora um að þú hafir verið á ströndinni ! okkur er sko alveg sama! (nei við viljum sól)!
en þetta verður að duga í bili þar til næst lifið heil

þriðjudagur, september 16, 2003
okey okey það er eitthvað verið að skjóta á mann úr ýmsum áttum að maður sé ekki nógu duglegur hérna á bloginu þannig að það er eins gott að fara að bæta eitthvað aðeins úr þeim vanda. Það er nú samt ekki eins og það sé ekki nóg að gera hjá stelpunni sko.. held að framhaldsskólar hafi eitthvað breyst síðan að þú varst í þeim Sverrir því núna þarf maður að læra og ekki bara í skólanum heldur líka heima... ! hvað er að gerast fyrir okkar aumu þjóð.. eru kennarar að fara yfir hinn gullna meðalveg þessa að setja ekki of mikið fyrir í tímum þannig að maður komist upp með það að læra Aldrei heima eins og á árum áður? Veit ekki hvað skal segja, en ég fór allavega ekki á neitt djamm um helgina heldur sat sveitt yfir stærðfræðibókunum og enskuritgerðum.
En stúlkur mínar sem eruð að bora í nefið í útlandinu ... það er svo sem ekki mikið að frétta af neinum sem flokka mætti sem "slúður" hérna á klakanum, fólk virðirst vera of upptekið við það að læra eða finna sér maka, eða jafnvel að hætta með einum og finna sér enn annan. Það er allt að verða vitlaust í þessum málum hérna, það er hreinlega makalaust... :)
Það var glimmrandi starfsmanna djamm um helgina sem leið, sem stelpan sá sér reyndar ekki fært á að mæta þar sem hún var að læra heyrðust fyrir vikið raddir um að hún ætti að vera kosin "nörd" ársins fyrir að vera heima að læra á þessu glimmrandi laugardagskvöldi.. það er svo sem hægt að vera margt verra get ég sagt ykkur :) fyrir utan það að þá var ég ekki það þunn að skafa þyrfti mig upp úr gólfinu með kíttispaða eins og margir starfsmenn voru :)
en nú er svo sem nógu mikill tími farin í vitleysu.. sem hefði mátt nýta til menntunar...
lifið heil þar til næst :)

mánudagur, september 08, 2003
Jæja jæja þá er helgin á enda og hið daglega amstur tekið við að nýju. Búin að hrista af mér þetta blessaða kvef sem var að ofsækja mig þannig að ég er til í slaginn. Þessi vika stefnir nú ekki í það að vera neitt frábrugðin síðustu tveimur fyrir utan kvefið þó ;).. eins og stendur sit ég hérna í góðu yfirlæti og horfi á myndband um hinn merkilega Halla Lax (Halldór Laxness). Það er að vanda allt brjálað að gera í skólanum og félagslífið því ekki upp á marga fiska núna. Það var reyndar tekið ansi gott djamm á laugardaginn sem leið og var bara nokkuð gaman. Veðrið hefði reyndar mátt vera betra en hverjum dettur svo sem í huga að væla yfir rigningu þegar góð stemming er til staðar. :)
Ég er að hugsa um að skella mér á ræðunámskeið hérna í skólanum.. Eleonora ég held að þetta sé svona eins og þú fórst á í Versló.. fæ einingu fyrir þetta, þannig að af hverju ekki að skella sér bara :)
Ekkert að frétta af klakanum svo sem fyrir þá sem eru í Frakklandi að læra frönsku eða að passa krakka orma í Bandaríkjunum :) Það hafa ekki gerst neinir stórir hlutir hérna síðan þið yfirgáfuð okkur en verið óhræddar þið fáið að heyra um það hérna ef eitthvað gerist :)
ágætu lesendur ég bið ykkur bara að lifa heil þar til næst :)

miðvikudagur, september 03, 2003
jæjæ nú fer þetta allt að komast í gang hérna... Svona þar sem að hún Eleonora okkar er að fara til Frakklands :) Nú er bara að harka af sér allt kvef og fara með gelluna út á völl í kvöld.. :) þart til þetta kemst í vana eigið þið góðar stundir ;)