<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, ágúst 03, 2009

-Mánudagur-

Það er víst síðasti dagur í verslunarmannahelgi í dag. Ég gerði þau stóru mistök að fara ekki til eyja.. það verður Aldrei gert aftur! Eyjar verða það næstu 100 árin.. Þetta er búin að vera þvílík pína að vera heima og vita hvað er búið að vera frábært þarna..

En í staðin er ég ss. ekki búin að sitja neitt og væla úr leiða.. (reyndar smá en ekki allt of mikið). Fór Esjuna í gær með Reyni og Arnari og í dag ætla ég að spreyta mig á 9km útihlaupi.. Maður kemur þá allavega þreyttur undan þessari helgi eina og eftir útihátið :o) en hugsanlega bara í betra formi en sumir :o)

þar til næst lifið heil...

sunnudagur, ágúst 02, 2009

-á maður ekki bara að byrja að blogga aftur ? hvernig er það?-

Ég hef aðeins verið að hugsa um hvort að ekki sé bara málið að byrja bara að blogga aftur. Það er dálítið verið að skjóta á mig að ég komi ekki nógu mikið í heimsókn, hringi ekki nógu mikið og sé alltaf upptekin. Svo þetta gæti svo sem bara verið hin fínasta leið til að halda ykkur up to date.

Það er að gerast í lífinu eins og stendur er að það eru 16 dagar í skólann! jibbí cola!

Ég er flutt í sporthúsið!

Höfn eftir tvær vikur :o)

ást hamingja og gleði..

sjáum hvort ég held þessu bloggi ekki bara við :o)

þar til næst lifið heil...

miðvikudagur, nóvember 14, 2007

-Þarf að bursta af tungumálakunnáttu minni-

Jesúss.. eins og einhverjir vita þá er ég að þjálfa allan skalann af útlendingum í sundi þessa dagana og hefur gengið misvel þar sem þau eru mistalandi á íslensku. Hvað varð um gömlu góðu enskuna.... í dag átti ég frekar forvitnilegt samtal.. Yfirþjálfarinn hringir í mig..

hún; Hulda, mannstu eftir þessum hópi þarna sem kom frá Colimbíu um daginn og settist hérna að..


ég; ummmmm.. já (guð nei hvað eru hún að tala um)


hún; æ þú veist þessi sem voru að flýja


ég; já einmitt (what?!? sjett þarf að horfa á fréttirnar)


hún; já það er einmitt en úr þeim hópi að fara að bætast við hópinn þinn.. mætir í dag..


ég; já ok. frábært (what!?!?! er töluð spænska eða hvað ... jesússs)


hún; jájá það gengur fínt.. gangi ykkur vel..


ég; ha já takk.. við reddum þessu (ætli barnið tali eitthvað annað en spænsku?)


Svo kom á daginn að blessað barnið tala tjaa svona 15-40 orði í íslensku og þau eru pottþétt ekki sundtengd.... svo ég tók bara upp enn einn leikþáttinn þarna á bakkanum.. þetta er eiginlega ekki fyndið.. ég svitnaði ábyggilega meira af stressi en blessað barnið sem ekki skildi neitt...

Svo þar höfum við það.. ég þarf að læra, spænsku, pólsku, rússnesku, serbnesku... jólagjöfin í ár kannski bara tungumálanámskeið...

þar til næst lifið heil...

miðvikudagur, ágúst 01, 2007

-Reykjavíkurmaraþon-

Þetta blessaða maraþon er sem sagt framundan og ég var búin í byrjun veturs að lofa mér í 10km. Það er svo sem ekki eins og maður geti sleppt því.. stór bróðir ætlar að fara heilt maraþon svo maður getur svo sem ekki verið minni manneskja en að drulllast þessa 10km. Reyndar alltaf sniðugt að hlaupa til góðs.. en hins vegar er einn vandamálsvængur á þessu.. þannig er mál með vexti að stelpan er nú búin að vera nokkuð dugleg að mæta á brettið á laugum til að vinna upp þolið í þessa litlu raun.. gengur sæmilega nema fyrir þann part að ég er alltaf að hlaupa á þeim tíma sem Grey's Anatomy er í sjónvarpinu.. og ég er í sífellur að fara að gráta yfir þessum blessaða þætti.. að sjálfsögðu gefur maður bara í og lætur sem að þetta sé allt saman sviti.. !!! ég held samt sem áður að þetta gangi ekki mikið lengur.. ég verð annaðhvort að finna nýjan tíma til að æfa á eða einfaldlega bara að fara út að hlaupa... ég held ég drullist bara út...

þar til næst lifið heil...

mánudagur, júlí 30, 2007

-Signý-

Er að átta mig meira og meira á því að það gæti verið hættulegt að hafa Signýu í vinnu.. komst að því í útilegunni um helgina að hún hefur verið að vekja töluverða athygli meðal karlmanna í CCP og það sannaði sig þegar líða tók á helgina.. mikið af sögum um hina ótrúlegu fegurð hennar fengu að þjóta um tjöldin og ekki leið á löngu þar til að önnur tjöld fóru að gera sig líkleg til að taka þátt í þessum umræðum.. Ungir menn komu til að finna þessa fögru snót og heyrst hefur að eldri menn hafi þurft að hækka róminn þegar hafa átti upp á stúlkunni ... ég er ekki viss um að ég geti passað hana svona í vinnuni okkar eins og Jón gerði í Þórsmörk.. Signý, spurning um að hafa auka dyravörð á vakt þegar þú ert ;) svona til að passa þig :)

Þetta var hins vegar alveg glimmrandi útilega, þrátt fyrir smá rigningu og smá frost :) CCP kann sko sannarlega að wörka staffið sitt :) takk fyrir mig kids..

þar til næst lifið heil...

sunnudagur, júlí 22, 2007

-Vikan-

Þetta var skemmtilega skrítin helgi... Á fimmtudaginn vann ég í næstum sólahring samfleytt. Það var því mjög forvitnilegt að fylgjast með mér á vaktinni um kvöldið þar sem búið var að innbyrgða aðeins meira magn af kaffi en ráðlagt er.. og var ég því eins og dúrasel kanína á amfetamíni... Gjörsamlega með hressa gaurinn i fyrirrúmi.

Laugardagurinn var sofa.. kringlan.. sofa... og svo vinna... það var gjörsamlega kreisí að gera og því vorum við ekkert að missa okkur í gleðinni þegar vaktin var á enda.. allir fremur þreyttir.. Svo við Signý ákváðum að fara bara á lélegt og fá okkur pullu og kókómjólk.. föttuðum báðar eftir langa stund að við værum bara að standa þarna.. löngu búnar að borða.. nenntum bara ekki að labba út í bíl :) Enduðum svo á ansi of löngu spjalli fyrir utan sem varð að morgunmati í íbúðinni fyrir ofan... sem var rosa fínt.. vínarbrauð og rúnstykki...

Áttum fallegt augnablik með Fjölni tattoo þar sem hann lagaði "félagann" á miðri hraðahindrun fyrir framan okkur... við bersýnilega vöktum ekki mikla athygli þarna á hindruninni... mjög fyndin sjón, en signý var frekar hrædd um að hann hefði heyrt í mér hlæja og myndi koma og lemja okkur.. en svo var sem betur fer ekki...

Nú hins vegar er komin Fimmtudagur.. og Ívar á afmæli í dag :) Til hamingju með daginn dúlluhaus :)

Laugar hafa verið teknar með ákveðnu trommpi þessa vikuna.. búin að vakna alla morgna í vikunni og drullast þangað.. fitumælingin í morgun var svona líka hressandi að ég hugsa nú að maður haldi þessu áfram :) Mér tókst meir að segja að sneika Signýu með á Þriðjudaginn...

Útilega á dagskrá um helgina.. það á að skella sér í Þórsmörk með CCP.. alltaf gaman af útileigum svo þessi ætti ekki að vera neitt annað en fun fun fun...

Fótboltaleikur í vikunni... Valur-Fylkir... er að sjá keppnisskapið sem var á Ísland-Ítalía hér um árið vera að koma aftur.. er að reyna eftir fremsta megni að hafa hemil á mér.. þetta er bara svoooo erfitt...

Fleyra er svo sem ekki að frétta eftir vikuna..

þar til næst lifið heil...

þriðjudagur, júlí 17, 2007

-myndir út útilegunni-

http://www.flickr.com/photos/bjarkar/sets

þar til næst lifið heil...

-Heyrst hefur-

- Að Hulda hafi farið að fram-valur leik í gær
- Að Hulda hafi verið í -séns á sleik? bol á leiknum og að það hafi verið séns á nokkrum!
- Að Gunni haldi að Hulda sé nettur valsari inn við beinið
- Að Signý sé stundum að leggja sig úti á götu
- Að Hulda hafi týnst á leiðinni í CCP í gær
- Að Signý sé ekki viss með munin á deildunum í fótboltanum
- Að Ingi sé ekki góður í að rata upp á Þingvelli
- Að skandalar staffadjammsins séu ekki sannir
- Að enginn hafi endað í Danmörku eftir staffadjammið
- Að Anja þurfi ekki að horfa framaný stráka áður en hún ræðst á þá í sleik
- Að Fúsi hafi skutlað Signýu heim af lélegt og ekki boðið henni í cheerios
- Að Hulda svari sms-um sofandi og beri því ekki ábyrgð á þeim
- Að Signý ætli að sitja FH megin á næsta leik liðanna ;)
- Að Anja hafi verið hrædd við ansi marga á Hróaskeldur
- Að Hulda hafi ekki farið út í 3 daga síðan að mac-inn kom í heiminn
- Að mac-inn verið tekinn af henni ef hún fer ekki að sinna fólkinu í kringum hana

þar til næst lifið heil...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?